Móðursjúka Þjóð

Hér sýnist mér stefna í enn eitt móðursýkiskastið hjá þjóðinni. Ætli öllum eintökum af Djöflaeyjunni verði ekki safnað saman og efnt til blaðabrennu niðrá Austurvelli? Þvínæst verður skipuð nefnd með valinkunnum forræðishyggju snillingum og farið yfir allan skrifaðan texta, hvort sem hann er í formi bóka, ljóða eða söngtexta, eða fyrir útvarp, sjónvarp og bíómyndir. Leitað verður sérstaklega eftir verkum þar sem skrifað hefur verið um fatlaða,  geðveika, þroskahefta og um "viðkvæm" mál einsog klám, fíkniefni, ofbeldi, samkynhneigð. Verður þessum verkum öllum safnað saman og haldin allsherjar brenna á laugardalsvelli þar sem kynnt verða ný lög sem banna allt grín nema að það geti alls ekki misskilist og fjalli eingöngu um fyndna hluti eins og feita kalla sem detta á rassinn og rjómakökuköst. 

Það sem ég hef séð birt úr þessari grein í djöflaeyjunni er svo augljóst háð að fólk þyrfti að vera alvarlega greindarskert til þess að halda að hér væri einhverskonar leiðarvísir fyrir neytendur fíkniefna. En það virðist sem að það séu alltaf til einhverjir móðursjúkir móðgunarfíklar sem rjúka upp til handa og fóta um leið og blygðunarkennd þeirra er misboðið. Greinin finnst mér ekki síst vera skot á hversu illa við erum stödd í forvarnarmálum. Mín skoðun er sú að það þurfi að ákveða hvort skuli gera, leyfa neyslu fíkniefna hér á landi eða fara í almennilega baráttu gegn þeim. Ljóst er að núverandi ástand er ómögulegt. En það er nú efni í annan pistil. 

Veriði Sæl! 


mbl.is Fíkniefnaleiðarvísir birtur í fríblaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þarfagreinir

Mér sýnist nú af öllu að aðalvandinn sé að fíkniefnaneysla sé orðið 'of lítt viðkvæmt mál'

Annars er ég hjartanlega sammála því að svona skoðanafasismi er af hinu slæma. Fíkniefni eru hluti af samfélaginu hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Halda forvarnarpostularnir virkilega að besta leiðin sé bara að þegja alla umræðu um fíkniefni í hel, nema einsleitan og staðlaðan forvarnaráróður? Er virkilega svona erfitt að sjá hversu lítt vænlegt slíkt er til að höfða til krakka á einhverjum vitrænum virðingargrundvelli?

En já, það allt saman er eins og þú segir efni í annan pistil. 

Þarfagreinir, 16.9.2007 kl. 16:56

2 identicon

Ég ætlaði að fá að spyrja þig að eins og einni einfaldri spurningu. Gætirðu sent mér línu? Þú sérð væntanlega tölvupóstfangið mitt inn í bloggkerfinu þínu.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband