Færsluflokkur: Bloggar

Uppljóstrun!

Ég var beðinn um að svara því, í spurningu við færsluna hér að neðan, hvaða flokk ég ætlaði að kjósa í komandi kosningum. Ég hef sagt það áður að ég er óflokksbundinn og að ekkert af flokkunum höfðar 100% til minna skoðana. Aftur á móti hef ég nú gert upp hug minn. Margir myndu kannski segja að ég hafi verið búinn að því fyrir löngu en svo er ekki. Eftir að hafa horft á fjörlegar umræður á Stöð 2 í gær fékk ég staðfestingu á því hverja ég ætla að kjósa.

Að mörgu leiti er valið ekkert sérlega fýsilegt. Frjálslyndir strokuðu sig út með innflytjenda-umræðunni, Samfylkingin með lýðskrumi í fjölda mála, Framsókn með stóriðjuofstæki, ömurlegri kosningabaráttu og ábyrgðarleysi í spillingarmálum og Íslandshreyfingin með ósannfærandi uppstillingu á listum sínum.

Þá eru eftir 2. flokkar. Sjálfstæðisflokkurinn og VG. Að mörgu leiti á ég mest sameiginlegt með stefnu margra innan Sjálfstæðisflokksins. Ég verð meiri og meiri frjálshyggjumaður með hverjum líðandi degi. En Sjálfstæðisflokkurinn er bara ekki mjög sannfærandi sem frjálshyggjuflokkur. Kannski hann hafi litast svona af samstarfi við Framsókn? Kannski togast þarna á ýmiskonar öfl og þar tapar hreinræktuð frjálshyggja oft fyrir íhaldssömum og rykföllnum hugmyndum? Eitt er víst, að frjálshyggjan ræður ekki þegar flokkurinn stendur í stórkostlegum atvinnu-töfralausnum á borð við Álver hér og þar um landið. Ekki hjálpar Sinnuleysið gagnvart því frábæra tækifæri að fá að taka þátt í risa tónleikahaldi sem 2 miljarðar manna yrðu vitni af og íslensk tónlist fengi notið góðs af. Hversvegna skyldu ráðandi öfl ekki hafa stokkuð um borð án þess að hika? Sjálfsagt vegna þess að náttúruverndarboðskapurinn var þeim ekki í hag. Ekki hjálpar til stuðningurinn við Írakstríðið. Ekki hjálpar til nýi skandallinn hans Björns Bjarnasonar. Þetta ásamt því að ég held að það sé einfaldlega nauðsynlegt og holt fyrir land og þjóð að breyta til, er ástæða þess að ég get ekki hugsað mér að kjósa íhaldið.

Í þætti Stöðvar 2. í gær voru leiðtogar flokkana beðnir um að segja hver yrðu fyrstu verk þeirra ef þeir kæmust til valda. Steingrímur J. sagði m.a. að taka Ísland af lista þeirra sem styðja blóðbaðið í Írak, biðjast formlega afsökunar og hefjast handa við aðstoð flóttamanna þaðan. Þessi maður fær atkvæði mitt. Maður sem ásamt fáliðuðum þingflokki hefur staðið umhverfisvaktina einn flokka, áður en það komst í tísku að vera grænn einsog allir flokkar virðast vera orðnir í dag. Ég er ekki alltaf sammála öllu sem hann segir, en þegar ég hef forgangsraðað hlutunum, þá er valið augljóst.

x-v

Veriði sæl!


Er Fólk Fífl!?!

Það lítur út fyrir að framsókn hafi haft rétt fyrir sér í auglýsingaherferð sinni, sem er búin að vera á sögulega lágu plani. Þar hafa þeir lagt net sín út til fábjána, með stafakalla auglýsingum sínum um vonda rauða kallinn og góða græna kallinn. Þetta siðlausa útspil virðist vera að virka því fólk er upp til hópa gleymið, illa gefið og vill mengandi stóriðju, spillingu og sinnuleysi í velferðarmálum áfram. Ekkert stopp! 

Nú þurfa allir sem vettlingi geta valdið, hvort sem það er hér á netinu, símanum, vinnustöðum eða annarstaðar, hvort sem þið styðjið Íslandshreyfinguna, VG, Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn að taka höndum saman og hamra því inní fólk sem hugsanlega gætu gert þau afglöp að kjósa yfir sig meiri Framsóknar-spillingu og Sovéska stóriðju að láta það eiga sig, kjósa heldur ALLT ANNAÐ! HVAÐ SEM ER!! 

Veriði sæl! 

 


mbl.is Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknar-Spillingin Heldur Áfram!

Ég horfði á upptöku af íslandi í dag áðan og litlu mátti muna að ég kastaði upp múslíinu frá því í morgun. Langt er síðan ég hef séð annað eins tilfinningaklám matreitt ofan í fólk. Hverskonar fávitar halda Framsóknarmenn að þjóðin sé?
Súmerum aðeins málið upp;
1.Stúlka með lögheimili hjá ráðherra framsóknarflokksins fær óumdeilanlega algera sérmeðferð í veitingu á íslenskum ríkisborgararétti.
2. Kastljós flytur fréttina á eðlilegan hátt. Enginn úr alsherjarnefnd man neitt, Jónína svarar engum spurningum, sýnir valdahroka og talar um ofsóknir, en gefur í skyn að stúlkan hafi mátt þola einhverskonar mannréttindabrot í heimalandi sínu.
3. Kastljós er með skýrsluna undir höndum, þar finnst ekkert um mannréttindi, heldur einungis að það "kæmi sér ílla fyrir stelpuna að vera ekki með íslenskan ríkisborgararétt, mikil og leiðinleg pappírsvinna" auk þess sem þar kemur fram að hún hafi fengið ótrúlega flýtimeðferð í kerfinu.
4. Jónína Bjartmarz sendir frá sér yfirlýsingu þar sem hún hagræðir sannleikanum og styllir sér upp sem fórnarlambi.
5. Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljós, rekur yfirlýsinguna þvert ofaní Jónínu tilbaka.
6. Tengdadóttir Jónínu kemur í viðtal í Ísland í dag til Framsóknarmansins Steingríms Ólafssonar. Þar fullyrðir hún að Jónína hafi ekki beitt sér í málinu.

Já okey.. má þá ekki bara hætta að ræða málið? Ég meina, hún kemur þarna fram sjálf og segir að Jónína sé saklaus, þá er þetta náttúrulega bara afgreitt mál. Ehaggi?? Allir í gúddí fíling? Ha?
Hverskonar fréttamenska er þetta? Það er engin furða að áhorfið á ísland í dag sé álíka lítið og fylgi framsóknar þegar svona hroðbjóður fær að viðgangast þarna. Er enginn sem spyr neinna spurninga? Fyrverandi aðstoðamaður Haldórs Ásgrímssonar tekur viðtal við sæta litla stelpu og hrósar henni fyrir hvað hún sé nú dugleg að tala málið, hvað hún sé dugleg í skólanum og hvort henni finnist ekki íslendingar vera bara klikk að ofsækja tengdó svona??
Ég get ekki orða bundist lengur. Framsókn svarar ásökunum um spillingu með meiri spillingu! UGH..!! Þvílík siðblinda!

Ég get vel borið virðingu fyrir fólki sem kýs Sjálfstæðisflokkinn og á marga vini sem gera það, en ég segi það fullum fetum að þú þarft að vera ílla gefinn einfeldingur til þess að kjósa Framsókn; spillingu áfram ekkert stopp!

Veriði sæl!


Hlutdrægar Skoðanakannanir

Einsog margir hafa bent á hér á blogglandi, þá er allt vaðandi í hlutdrægni í fjölmiðlum landsins fyrir þessar kosningar. Helgi Seljan og Sigmar Guðmundsson hafa málað skrattann á vegginn í umfjöllun sinni um Jónínu, mál sem varla gæti talist frétt og það er alveg ljóst að ef þessir pörupiltar væru góðir og gildir framsóknarmenn væri þetta mál ekki einnu sinni til umfjöllunar. Kastljós halda svo áfram í hlutdrægni sinni í gær á borgarafundi sjónvarpsins. Þar mátti heyra fólk hlægja af Jóni Sigurðssyni, þáttastjórnendur rengdu ráðherra í ríkisstjórninni og áhorfendur klöppuðu og hlógu þegar Stengrímur J. niðurlægði einn ötulasta stuðningsmann, frambjóðanda og tilvonandi menntamálaráðherra okkar framsóknar Svein Hjört Guðfinnsson. Þvílíkt og annað eins!! Það má vera alveg ljóst að hlutföll fólks í salnum voru skökk, hversvegna var ekki salurinn fylltur af framsóknarmönnum?

Annað sem mig langar að vekja athygli ykkar á er hlutdrægni þeirra sem gera skoðanakannanir. Hvernig stendur á því að Gallup og Félagsvísindastofnun Háskólans hringir ekki í fleiri framsóknarmenn þegar þeir gera þessar kannanir sínar.. þetta er alveg fyrir neðan allar hellur!! Líkt og könnunin sem birt var í kvöld, 4.5% í Reykjavík Norður!! Hvers eigum við að gjalda?

Veriði sæl!


Silfur Egils

Horfði á hressilegar umræður í Silfrinu fyrr í dag. í uppgjöri vikunar sátu fulltrúar fjögurra stærstu flokkanna ásamt Agli, sem vildi meina að þessi kosningabarátta væri leiðinleg.. Ég get ekki tekið undir það. Mér finnast þetta gríðarlega spennandi kosningar. Að vissu leiti er það rétt að hún hefur svolítið snúist um skoðanakannanir sem birtast nokkrar á dag og sveiflast töluvert, en maður finnur samt sem áður fyrir gríðarlegum taugatitringi meðal frambjóðenda allra flokka. Hér á blogginu er hnakkrifist og oft heldur ómálefnalega, líkt og stuðningsmenn fótboltaliða gera svo gjarnan.

Það hefði nú verið mun heppilegra ef Egill hefði haft Jón Baldvin í þessum þætti frekar en fyrir viku í ljósi þessa spillingamáls sem upp er komið þar sem Jón er nú sérfróður um spillingu. Hann hefði getað rakið fyrir okkur mál einsog skinku-töskuna sem hann flutti inn á sínum tíma, brennívínsboðið hennar Bryndísar sem þjóðin borgaði auk þess sem hann hefði getað upplýst þjóðina um sitthvað nýtt sem hann hefur haft fyrir stafni, sem svo margir vita af en enginn þorir að nefna.

En aftur að þættinum. Valgerður háði tapaða baráttu með því að reyna að afmá spillingarfýluna af flokki sínum. Kannski er það rétt hjá Framsókn, að þjóðin sé heimsk, en svona heimsk er hún ekki. Í kjölfar þess að restin af viðmælendunum jánkuðu því að þetta mál þyrfti að ransaka ofaní kjölinn, nötraði Vala af bræði og náði sér aldrei á strik. Guðlaugur var ágætur en Ömmi hefur verið betri.

Sá sem mér fannst bera af í þættinum aftur á móti var Össur. Aldrei bjóst ég nú við því að segja þetta þar sem ég get nú varla talist til mikilla aðdáenda hans flokks, en hann naut sín afar vel í dag og raunar hefur það verið áberandi hvað Össur hefur verið að sækja í sig veðrið uppá síðkastið. Kannski er það vegna þess að Davíð er horfinn af leikvellinum? Davíð hafði einstakt tak á Össuri ásamt svo mörgum örðum og tókst honum ósjaldan að láta Össur líta út einsog kjána. Nú er hann aftur á móti farinn og það er einsog Össur sé allt annar maður. 

Annað sem mér fannst áberandi, var hve vel fór á með þeim Ögmundi og Össuri. Það vantaði bara að þeir blikkuðu hvorn annan og gæfu hvorum öðrum high five af og til. Þeir sjá þá vonarglætu að saman takist þeim að fella stjórnina, og til þess að svo megi verða, verði þeir að hætta að berjast sín á milli. En hvernig ætlar þeim að takast þetta á þeim 2. vikum sem eftir er af baráttunni?

Ef ég sæti í nefnd sem tæki þetta mál upp myndi ég leggja fram eftirfarandi;

Nú þarf að láta af eineltinu á hendur Framsókn. Þeir eru fullfærir um að leggja sjálfa sig í einelti með misheppnaðri kosningabaráttu, spillingarmálum og steinaldarstóiðjustefnu. Auk þess halda þeir stífum fókus, á öllum sínu klúðri, hér á internetinu og því er óþarfi halda þeim málum á lofti, þeir gera það sjálfir. Einsog ég sagði, framsókn leggja sjálfa sig í einelti og eru á góðri leið með að fá flokkinn niður fyrir fylgi frjálslyndra.  Nú þarf að vaða í risann ógurlega. Hann hefur setið til hliðar fullkomlega óáreittur. Þeir þurfa varla að auglýsa neitt, samt mælist flokkurinn á flestum stöðum í svipuðu fylgi og í síðustu kosningum?? Þrátt fyrir Írak!!?? Þrátt fyrir Kárahnjúka og allan þann hildarleik sem þar hefur átt sér stað!!?? Þrátt fyrir ójöfnuðinn sem sífellt vex og vex!!?? Er Árni Johnsen virkilega á leiðinni á þing aftur??

Þett yrðu mínar tillögur ef ég sæti í nefnd um hvernig fella ætti ríkisstjórnina. 

 

Ég hef sagt það áður og segi það aftur, ég er óflokksbundinn áhugamaður um pólitík Smile

 

Veriði sæl! 


Framsóknarkonur Með Tupperware Kynningu

Mikið hefði ég vilja vera kona í kvöld, bara í smástund, bara rétt svo til þess að kíkja á Konukvöld Framsóknar sem auglýst var í fréttablaðinu í dag. Óhætt er að segja að Konurnar í Framsókn séu í stórsókn þessa dagana, hver á fætur annari minna þær á sig í fjölmiðlum. Kannski er þetta eitthva pr-stunt hjá flokknum, til að auglýsa konukvöldið, að koma konum sínum í fréttir beggja stöðva?

Það hefur verið á brattan að sækja hjá flokknum hvað varðar fylgi meðal kvenna og nú á að snúa vörn í sókn! Jónína Bjartmarz, sem hiklaust er hægt að kalla aðalnúmer fréttatíma kvöldsins átti að vera gestgjafi kvennakvölds Framsóknar í kvöld. Það hefur sjálfsagt verið pakkfullt þarna hjá þeim eftir þessa fínu kynningu í fréttunum. Flott flott, en hvað var svo í boði fyrir konurnar??

Maður gæti látið sér detta í hug að Framsóknarkonur myndu ræða um hvað þær séu búnar að bæta hag kvenna mikið þessi 12 ár sem þær hafa setið að kjötköttlunum, næst tæki við alment spjall um stöðu kvenna á vinnumarkaði, því næst hvað Framsóknarkonur ætli að gera komist þær til áframhaldandi valda.

Nei, ekki alveg. Dagskráin var eftirfarandi;

Létt tónlist og veitingar
Snyrtivörur-kynning og förðun!
Fatnaður fylgihlutir og skartgripir!
Happadrætti - glæsilegir vinningar!
..og syngjandi leynigestur!

Þetta hefur semsagt ekki verið stjórnmálalafundur, heldur sauma/kjaftaklúbbur Framsóknar. Ekki efast ég um að nóg hafi verið til að skrafa um þar.

Það er samt hægt að segja Framsókn til málsbóta að þeir eru vissulega samkvæmir sjálfum sér hvað varðar kosningaherferð sína. Línan er að tala niður til kjósenda líkt og þeir séu fávitar.

Þetta kallar maður að toppa á réttum tíma!

Veriði sæl!


Botnveiðar Framsóknar

Það er greinilegt að frjálslyndi flokkurinn hefur náð að opna nýja vídd í kosningabaráttunni. Með því að höfða til lægstu hvata manneskjunar, hræðslu við hið óþekkta (útlendinga) reyna frjálslynir að veiða atkvæði hjá ílla upplýstu og ílla innrættu fólki. Um þetta hef ég verið að ræða í fyrri pistlum mínum og ætla ekkert að fara að endurtaka þær ræður, þetta eru örvæntingarfullar aðgerðir flokks í útrýmingarhættu. Nú er annar flokkur farinn að sækja í hugmyndaver Frjálslyndra um óvenjulegar atkvæðaveiðar, Framsóknarflokkurinn.

Mér var bent á síðu sem Framsókn heldur úti og augljóslega á að höfða til ákveðins hóp kjósenda; Fæðingarhálfvita.. kind.is er síða sem er merkt Sambandi Ungra Framsóknarmanna og er stæling á síðunni b2.is og er full af allskonar tenglum á sniðuga hluti á netinu einsog krúttlega hamstra og fólki að detta á bossann. Nema hvað, í svona þriðja til fjórða hverjum tengli má finna tengla einsog "VG á móti - kemur á óvart!" svo 2. linkum neðar "Líka á móti Leifsstöð!" osfv..

Á síðunni má líka finna beinar auglýsingar Framsóknarflokksins sem höfða eiga sérstaklega til þessa hóps. Eftir að hafa horft á nokkrar þeirra komst ég að þessari niðurstöðu að hér sé Framsókn að fiska á ný mið, mið fæðingarhálfvita. Þær eru afar einfaldar, enginn þungur texti, Skýrmælt kona talar til áhorfenda "Hey krakkar, pössum okkur á rauða kallinum (sem er, viti menn, undarlega líkur Steingrími J.) Kjósum Græna kallinn, hann er svo góóóður, Rauði kallinn vill bara banna allt en græni kallinn ætlar að leyfa þér að gera allt sem þig langar, veii.." Ugh.. Afar vondur leikur hjá flokknum. Að koma fram við kjósendur einsog þeir séu mjög mikið ílla gefnir gefur ekki af sér góðan þokka.

Framsókn er vissulega í sömu stöðu og Frjálslyndir hvað það varðar að flokkurinn er á barmi útrýmingar. Þegar sú staða blasir við taka við örvæntingarfullar tilraunir til atkvæðaveiða, Framsókn hefur tekið örvæntingar-forystuna.

Ég ætla að spá því að þetta eigi eftir að koma í bakið á þeim, allir fæðingarhálvitarnir sem þeir hafa hrætt til að fara á kjörstað til að kjósa græna kallinn eiga eftir að kjosa Græna flokkinn.

Þá er bara ein spurning eftir ósvöruð ; Hver borgar þessa geðveiki?? Getur einhver svarað mér hvernig næstminnsti flokkur landsins hefur efni á því að auglýsa dag eftir dag í öllum auglýsingatímum allra fjölmiðla landsins? Hver er að borga þetta??


Ég Bíð Og Bíð Ómar..

Ég kem engu í verk í dag vegna spennu.. Mikið tekur þetta langan tíma hjá Ómari?? Ég vona nú innilega að vinnuveitendur hans hafi ekki bannað honum að kæra, hvað þá að hafa frekari afskifti af þjóðmálum. Hef nefninlega ekki séð nein skrif hjá honum varðandi pólitík í svolítinn tíma..??

Kannski er bara svona mikið að gera hjá honum, þarf náttúrulega að svara fyrir matareirtrun 180 starfsmanna Impreglio.. fjölmiðlar að hringja á fullu í hann, allt í volli.. Kannski eru allir 180 starfsmennirnir að íhuga málsókn á hendur Impreglio??

Við skulum samt vona að hann finni sér smugu í dag til að standa við stóru orðin.

 

Veriði sæl! 


Hvenær Kemur Kæran?

Ég vaknaði alveg ofurspenntur í morgun, ekki bara útaf leik Liverpool og Chelsea i kvöld, heldur líka vegna yfirvofandi símtals frá lögfræðingi/um (Kannski er hann með heilan her lögfræðinga?)  Ómars R. 

Veit einhver hvernig svona virkar? Kemur einhver jakkafata-gosi með umslag og afhendir mér formlega kæruna? Eða kannski lögreglan bara? Þarf ég að kvitta fyrir móttöku kærunar? Hvernig fer svona lagað fram? Er einhver hérna í blogglandi sem Ómar hefur kært áður og getur upplýst mig um hverju ég má eiga von á? Hann nefndi einhvern lögfræðing með nafni í símann í gær en sökum hve rödd hans var bjöguð af reiði heyrði ég ekki hver það var.

Annars rakst ég á skemmtilega gátu hérna á netinu tengda þessu máli öllu.

 

Veriði sæl! 

 


Íslenskir Rasistar

Ég hef mjög gaman að því að lesa annara manna blogg. Sérílagi þegar ég á að vera að vinna.. Þetta er alveg nýr ósiður sem ég hef tileinkað mér og finnst mér sérstaklega gaman að skoða blogg hjá fólki sem mér finnst hafa kjánalegar skoðanir á lífiinu.  Þar á meðal eru nokkrir kostulegir framsóknarmenn og einn og einn samfylkingarmaður. Það má líkja þessu við einhverskonar nautn, "best að athuga hvaða vitleysu þessi fábjáni er nú búinn að skrifa" og svo þarf maður að hafa sig allan við til þess að fara ekki að hæðast að viðkomandi í kommentakerfinu þeirra.. Já, stór partur dagsins getur farið í þetta og ég tala nú ekki um ef að maður skildi nú lenda í ritdeilum við viðkomandi.

Efstir á þessum lista mínum yfir "Snillinga" sem ég fæ sérlega nautn útúr því að lesa eru nokkrir frambjóðendur Frjálslyndra. Mjög oft tekst mér að fylla á gremju-tankinn minn með lestur af bloggsíðum frá þeim vitringum.

Það er mjög sérkennilegt að fylgjast með kosningabaráttu þeirra þar á bæ. Þegar þeir koma fram í fjölmiðlum, þá helst Guðjón Arnar, sverja þeir af sér allan rasisma og benda á að aðrir flokkar hafi nú verið með svipaðar hugdettur og þeir séu að bera fram, uppá teningi sínum í gegnum tíðina. Kannski taktískt rétt hjá Guðjóni.. líklegra að þeir sem FF eru að miða inná í sínum rasísku atkvæðaveiðum séu frekar að horfa á rambó 3 en kosningaumræður á RUV. Svo þegar spyrlar þáttana ásamt frambjóðendum annara flokka saka þá um rasisma setur Guðjón upp svip fórnarlambsins og skilur ekkert í þessu einelti.

Í kjölfar þessa fór ég að velta fyrir mer hvort þjóðin væri orðin móðursjúk aftur.. eitthvað svipað væri að gerast með greyið FF og átti sér stað þegar þjóðin fór á hvolf í hræsni sinni varðandi yfirvofandi heimsókn klámmyndaframleiðanda. Kannski vilja FF útlendingum ekkert nema gott eins og Guðjón Arnar vill meina.

En þegar maður les bloggin frá frambjóðendum er allt allt annað uppá teningnum hjá þeim flestum. Þessi t.d. er ekkert annað en rasisti. Hér er svo annar vinur hans búinn að skriflega opinbera sína rasísku hugmyndir á afar ógeðfeldan hátt. 

Niðurstaðan er þá þessi; þrátt fyrir að FF reyni að spila sig sem fórnarlömb í ósangjörnum árásum á þá, (þeir vilji í raun allt gott fyrir útlendinga gera) þá sýna þeir sitt sanna eðli hér á blogginu. FF er hreinn og beinn rasistaflokkur. 

 

Veriði Sæl! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband